Ég er víst alveg rosalega lítill bloggari í mér..... en ok
Lífið mitt er um það bil að hverfa ofaní bananakassa. Vissuð þið
að bananakassar eru sérlega góðir til að pakka í. Eins og er standa
14 kassar í stofunni og samt virkar eins og við séum ekki byrjuð að
pakka..... skil ekki alveg hvernig í óskupunum við eigum eftir að
komast í höfn með allt þetta drasl okkar. Verðum víst virkilega að
fara að taka okkur saman.
Fyrir ykkur sem af einhverjum furðulegum ástæðum eruð ekki búinn
að lesa blogginn minn inn og út síðustu mánuði þá erum við semsagt
fjölskyldan....(öll þrjú hehe) að flytja til Kristiansand. Það
verður nú alveg hið besta mál að komast í aðeins stærra húsnæði.
Það er enn þá linkur á síðunni með húsinu okkar svo þið getir kíkt
á óskupin
Við flytjum semsagt eftir 2 vikur og eimitt
eftir 2 vikur mæta bræður mínir tveir í málingarvinnu
Býsna vel
af sér vikið að plata þá til að koma í heimsókn þegar við
flytjum...bæði hægt að nýta þá í að mála og pakka upp úr kössunum.
Nú svo eru mamma og pabbi líka á leiðini í sumar til að leika við
barnabarnið....veit nú ekki alveg hversu áhugasöm þau verða um að
mála þau geta valið á milli Ingunnar og málingarrúllunnar
Það verður vafalaust alveg ægilega skrýtið að fara frá Bergen
eftir 7 ár hérna, mér er byrjað að kvíða fyrir að kveðja vini okkar
hérna..... er búin að fá algjörlega nóg af því að kveðja fólk
undanfarin ár
Aumingja Magga....
Nei ok hætt að kvarta og kveina, er eiginlega frekar ánægð með
þetta ár. Heimsóknartíðnin hefur verið með hærra móti að heiman svo
ég get alls ekki kvartað. Svo er hún yndislega bilaða frænka mín að
koma í heimsókn í sumar (já ég veit að þú lest þetta....
Velkomin elskan mín öll sömul og sérstaklega hinn vaxandi
magi, sem Ingunni hlakkar til að leika við seinna meir.)
Nú og þið sem eruð ekki nú þegar búin að ákveða að koma í
heimsókn verið bara endilega að skella ykkur....nóg
pláss.
Ok best að halda áfram að horfa á kassana. Heyrumst
fljótlega.
ps nýtt hér er að dóttir mín er byrjuð að labba og búin að læra
að klappa, við erum náttlega alveg sjúklega stolt af henni.